Wicanders

Parketið er í 905 x 295 x 10.5  mm. Þetta er korkparket með HPS Vínylhúð sem gefur því sérstaklega mikla endingu, einnig er um það bil 2mm af korki undir sem eykur hljóðeinangrun og varmaeinangrun langt umfram hefðbundin parket.

WICANDERS korkparket eru fljótandi gólf þ.e.a.s. að ekki þarf að líma né negla efnið á nokkurn hátt, heldur er því smellt saman og látið liggja laust ofan á gólfinu. Það er mun fljótlegra að leggja fljótandi gólf heldur en þessi hefðbundu niðurlímdu gólf. Því er Þetta kjörin lausn þar sem verið er að gera upp eldri gólf eða þar sem að gólfin eru ekki alveg slétt. Eins er þetta frábær lausn fyrir laghenta en flestum er lagið að leggja þetta gólfefni sjálfum. Með korkmagninu sem er notað í kork-LOC næst 26db hljóðdeyfing við fótatak.

WICANDERS Korkparket

Korkparketið frá WICANDERS með HPS Vínylhúð er slitsterkt og fallegt gólfefni með kork útliti og hefur alla eiginleika korksins s.s. mýktina, hlýjuna og hljóðdempunina.

Parketið er í 905 x 295 x 10.5  mm