VIROC byggingaplatan er framleidd úr blöndu af sementi og trétrefjum. VIROC plöturnar eru sementsgráar og svartar á lit og er áferð platnanna hart og slétt báðum megin. VIROC plöturnar eru framleiddar úr sérstökum efnasamböndum sem henta vel við allar aðstæður, úti sem inni. VIROC inniheldur engin rokgjörn efni sem gætu verið skaðleg.
VIROC má meðhöndla á marga vegu. fasa og festa má plöturnar með venjulegum skrúfum, auk þess að auðvelt er að fræsa og útbúa gengjur í plötuna.
VIROC byggingaplatan hefur breitt notkunarsvið og er endingargóð auk þess að hafa þrjá megin eiginleika:
- VIROC er brunaþolin, hljóðeinangrandi og vatnsþolin.
- VIROC má nota í blautrými og þar sem vatn mæðir á. Sveppagróður loðir ekki við Viroc.
- VIROC-plöturnar henta þ.a.l þar sem kröfur eru gerðar um hreinlæti.
- VIROC hefur einstaka yfirburði alhliða utanhússklæðninga.
- VIROC hefur verið notað í forsmíðaðar einingar með mjög góðum árangri, hvort sem er einföldun eða tvöföldun veggja, með einangrun eða án.
- VIROC hefur einstaka yfirburði sem utanhússklæðning og þolir íslenskra veðráttu einstaklega vel, bleytu, frost og jarðveg.
- VIROC er viðurkennt af Brunamálastofnun sem klæðning í flokki 1.